Friday, December 4, 2009

Amma Jútta 80 ára í dag!!!

Til hamingju með afmælið elsku mamma/amma okkar!!!!!

Monday, November 30, 2009

Saturday, November 28, 2009

Thursday, October 29, 2009

Lára hetja



Hér er Lára hetja með Einar Tryggva nokkurra vikna. Við hlökkum öll mikið til að sjá hana aftur!

Flautuleikur



Pétur tók þetta myndband upp á meðan ég var á sjónum og sendi mér....ég hugsa að ég hafi horfti svona 50x á það :)...
Í gær varð Einar Tryggvi 13 mánaða og Guðrún Nína X ára ....til hamingju með afmælið í gær Guðrún Nína!

Thursday, September 24, 2009

ein mjög stutt....

Alltaf á ferðinni!!!


Það getur verið ansi erfitt að smella mynd af Einari Tryggva þessa dagana en ég ákvað að setja þessa inn sérstaklega fyrir afa og ömmu í Þýskalandi. Hann hreyfir sig mikið og leggur upp í marga rannsóknarleiðangra og er að öllu jöfnu glaður. Reyndar er hann á sýklalyfjum núna þar sem hann reyndist vera kominn með eyrnabólgur um síðustu helgi.....jamm, þetta er víst dagmömmupakkinn.....

Sunday, September 6, 2009

Fjórir saman !!!

Yndisleg heimsókn frá Hollandi....frh.



Nú er ég heldur betur búin að trassa bloggið e
nda búið að vera mikið að gera undanfarnar vikur.....mig langar samt að dæla inn nokkrum myndum í viðbót frá heimsókn Siggu og fjsk. ...mikið var yndislegt að sjá þau öll ......Á þessum myndum má sjá þá frændur með þrívíddargleraugun sín en þeir fóru á þrívíddarbíó saman. Einnig var heilmiklum tíma varið í legó og það voru sko engar smásmíðir sem þeir byggðu..
..




















Friday, July 10, 2009

Foreldrametnaður





Sigga frænka var heldur ekki efins um framtíð Einars Tryggva þegar hún gaf honum þessa samfellu....Faðirinn hefði náttúrulega kosið Yale búning .............nú er bara að sjá hvort að Einar Tryggvi verði þessu öllu sammála þegar fram í sækir?
Bestu kveðjur úr veðurblíðunni

Monday, June 29, 2009

Sumarfrí á Vesturlandi







































Hérna eru nokkrar myndir úr sumarfríinu okkar í Þverárhlíð. Við áttum náðuga daga ásamt góðum gestum, fórum í Surtshelli, Húsafell,héldum upp á 17.júní á Borgarnesi og fórum í afar skemmtilega ökuferð út á Snæfellsnesið. Einar Tryggvi sem nú er orðinn níu mánaða fór síðan í fyrsta sinn í sund í laugina á Borgarnesi og þótti það sko ekki leiðinlegt!! Það er öruggt að sundferðirnar eiga eftir að verða fleiri.
bestu kveðjur

Sunday, June 28, 2009

Frábærir strákar, frábær árangur!






Jakob var að keppa á Shellmótinu í Eyjum (þetta er mót fyrir 9/10 ára fótboltastráka af öllu landinu) og ég tók að mér liðsstjórn ásamt öðru foreldri fyrir C lið Fylkis sem Jakob keppti með (það sem maður lætur hafa sig út í!! :) ) Þetta voru allt frábærir strákar og stóðu sig svo vel að þeim tókst að vinna bikarinn í sínum riðli!!! Það voru hamingjusamir strákar sem hömpuðu bikarnum eftir mikla baráttu, harmleiki,gleðileiki, meiðsl, blóð, svita, tár, reiðiköst,hlátursköst á fyrsta stórmótinu sínu (alla veganna hjá Jakobi). Jakob stóð sig mjög vel og það er næstum því ótrúlegt að hann hafi ekki byrjað að æfa fyrr en um síðustu áramót. Eins og þið getið ímyndað ykkur þá hefur fótboltaáhuginn ekki dofnað eftir annan eins árangur og líklega verð ég að hampa hlutverki "soccer mum" í langan tíma sem er ekki leiðinilegt skal ég segja ykkur!

Thursday, June 11, 2009

Gullmolarnir okkar!!

Eins og sjá má á Jakobi þá hefur veðrið verið mjög gott í fyrstu viku sumarfrísins. Við vonum náttúrulega að það haldi sér gott því á morgun höldum við vestur í Borgarfjörð í smá sumarfrí..........bestu kveðjur héðan

"Hey, not again","Hey, my lucky sticker"

þetta er einn af fínu bílunum sem Einar Tryggvi fékk frá frændum sínum í Hollandi og talandi bílar eru nokkuð vinsælir þessa dagana .....videoið er rosa stutt þar sem það tekur svooo langan tíma að hlaða því inn ....ég skal reyna að vera með lengri mynd næst!

Fyrsta pizzan?



Í síðustu viku buðum við nánustu fjölskyldu (þann hluta sem býr á landinu) í skólaloks-pizzupartý fyrir Jakob. Einar Tryggvi reyndi ítrekað að krækja í sneiðarnar hennar ömmu sinnar en verður að láta mola úr pizzubotninum duga að sinni eða alla veganna þangað til að tönnunum hefur fjölgað....no teeth no pizza.....:) ...(no pizzas were harmed during the photo shooting of this picture)....

Sunday, May 24, 2009

Afi og amma í Freiburg

Sigga frænka kom með þennan skemmtilega smekk en Óskar var með hann í gullbrúðkaupi afa og ömmu fyrir örfáum árum síðan.....svei mér þá ef matarlystin er ekki betri þegar Einar Tryggvi setur upp þennan smekk :)

cheerios