Tuesday, November 29, 2011

jóladagatöl o.fl.



































Hin árlega sending á jóladagatölum frá ömmu og afa í Þýskalandi markar upphaf jólaundirbúnings á þessu heimili


























Hér hefur snjóað og tækifærið notað til að bregða sér út á sleða...og aldrei þessu vant.....herra Einar Tryggvi klæðist peysu prjónuð af engri annarri en mér !!! jú ég get þetta stundum

Thursday, October 13, 2011

Einar Tryggvi og afmælisveislan










































Við héldum upp á afmælið hans Einar Tryggva um síðustu helgi og var mikið um dýrðir. Hann fékk marga flotta pakka...leikföng og dót og þökkum við öllum kærlega fyrir hans hönd......
Hér má líka sjá verðandi unglingana, Jakob og Láru, sem voru að bera saman bækur sínar...eða öllu heldur "æpodana" sína.

Afmælisbarnið var líka í sjöunda himni yfir Gogga Mega kökunni sinni, en hann er búin að biðja um Gogga Mega -afmælisköku í langan tíma. Fyrir þau sem ekki þekkja til þá er það persóna í Latabæ, en Latibær er einn af uppáhalds sjónvarpsþáttunum hans Einars Tryggva. Ég hélt nú að
það væri ekkert mál að panta eina svona mynd hjá einhverju bakaríinu, en onei....engin þorði að prenta fyrir mig mynd úr Latabæ af ótta við lögsókn af hálfu fyrirtækisins...Þá voru góð ráð dýr en sem betur fer hafði ég upp á búð í Ármúlanum (Alltíköku-frábær búð og þjónusta) þar sem ég gat reddað öllum nauðsynlegum græjum(sykurmassa, lit o.þ.h.) og sat því sveitt við að mála Gogga á laugardagskvöldið...útkoman er svoldið skrýtin en markmiðinu var náð. Einar Tryggvi var alsæll með þetta.

Einar Tryggvi fær fleiri pakka!

















































..og áfram héldu pakkarnir að berast frá útlöndum, í þetta skiptið frá Siggu, Snorra, Einari og Óskar......Tollurinn vinnur samviskusamlega sína vinnu og tékkar á öllum innflutningi frá Hollandi....Alla vega var Einar Tryggvi mjög ánægður með "Cars" þemað og allt nammið. Reyndar lagði mamma hald á hluta þess enda gæti alveg eins staðið "Klara" á gulum MogM pokunum...ekki satt elsku Sigga? Takk kærlega fyrir okkur :)

Thursday, July 21, 2011

Sumarkvöld í Nauthólsvík








































































Eftir vel heppnaðan kvöldverð með tengdó var kíkt í Nauthólsvík...smá slys í buxurnar hjá ET olli því að hann fékk sér ágætisbað í pottinum og skemmti sér og okkur hinum hið besta...þegar þurrar buxur vantaði á drenginn fékk flíspeysan nýtt hlutverk....

Wednesday, June 8, 2011

Skólaslit 6.bekkjar

Þetta eru flottir strákar sem voru að klára 6.bekk! Jakob og Hilmir og svo fékk Einar Tryggvi að vera með á myndunum

Skólameistari í skák

Við erum ekki lítið stolt af Jakobi sem varð skólameistari í skák og átti það virkilega skilið. Bikarinn fékk hann við skólaslit 3.júní.

Einar frændi ofurhugi!!

Einar var ekki smá kaldur og fór í þetta tæki í húsdýragarðinum....

Heimsókn frá Hollandi-Húsdýragarðurinn

Að sjálfsögðu var farið í húsdýragarðinn....


Heimsókn frá Hollandi -í hesthúsinu


Við heimsóttum Willy og Röggu í hesthúsin þar sem strákarnir fengu að fara á bak Frosta...og Lotta fékk að prófa líka


Monday, April 25, 2011

Páskaeggjaleit!


Stoltur á koppnum



Einar Tryggvi notaði páskafríið var notað til að læra að kúka í kopp og hefur það gengið mjög vel....

Sunday, February 6, 2011

Snjór í Reykjavík!!





































það fer að verða frekar sjaldgæfur viðburður að fá mikinn snjó á höfuðborgarsvæðinu og Einar Tryggvi naut þess út í ystu æsar....sá eldri lét sér hins vegar fátt um finnast ....

Einar Tryggvi dundar sér

Einar Tryggvi er duglegur að dunda sér og einstaklega flínkur púslari...hér er smá video af honum þar sem hann er að söngla og púsla.....

Spænsk rómansa á spænskan gítar

Þetta video er aðallega tekið upp með afa og ömmu í Þýskalandi í huga til að leyfa þeim að heyra og sjá Jakob spila á fína nýja Alhambra gítarinn sem þau tóku þátt í að gefa honum um jólin