Tuesday, September 30, 2008

...og fleiri teknar í dag.....






28. September drengur fæddur





Hérna eru nokkrar myndir fyrir ykkur , bæði hérlendis og erlendis sem bíða spennt. Frekari sögur fá að bíða seinni tíma...alla veganna gengur allt vel

Sunday, September 28, 2008

Sigga systir á afmæli í dag!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!


Til hamingju með daginn elsku systir!!!!
Myndin er tekin í Reykjanesi sumarið 2004 en fjölskyldan kom til Íslands í heimsókn og kynnti fyrir okkur nýjan sætan frænda, hann Óskar...........

Thursday, September 18, 2008

Snorri á afmæli í dag!!!!!

Kæri Snorri mágur minn á afmæli í dag. Í tilefni dagsins set ég inn nokkrar myndir frá sumrinu 2007 þegar þau fjölskyldan komu til Íslands í sumarfrí......Meðal annars var fest á filmu þegar fjölskyldan yfirtók tjarnarhólma í Reykjanesi og nefndu Litla Holland......
Hafðu það sem best í dag Snorri minn!!


Wednesday, September 10, 2008

Jakob byrjaði að læra á gítar .......


38.vika





Eftir fjölda áskorana.....frá Siggu systur og Snorra þá var loksins drifið í bollumyndatöku, ekki seinna vænna á 38. viku meðgöngu ....

Jakob er orðinn mjög spenntur og hlakkar mikið til þess að takast á við stóra bróður-hlutverkið. Hann hefur einnig reynst ákaflega hjálpsamur t.d. burðast hann með þunga innkaupapoka fyrir mömmu sína með bros á vör. Það er munur að hafa svona hjálparhellu á heimililinu!