Um helgina varð Einar Tryggvi 6 mánaða! Ótrúlegt hvað tíminn hefur verið fljótur að líða. Hann er hress og kátur og er farinn að burðast við að sitja. Þennan mánuð höfum við verið að prófa okkur áfram með mat og núna er hann farinn að borða 2x á dag og jafnvel þarf að bæta við þriðju máltíðinni. Hann hefur verið svoldið kresinn á fæðið en það má segja að grautur blandaður með perumauki er toppurinn á tilverunni...vonandi tekst mér að fá hann til að meta heimatilbúið grænmetismauk sem Jakob borðaði með bestu lyst á hans aldri Nú styttist heldur betur í að ég byrji að vinna og að Pétur komist í fæðingarorlof og það lítur út fyrir stuðsumar hjá þeim feðgum...
bestu kveðjur