Monday, December 6, 2010

Monday, November 15, 2010

Komin heim !!!!!!!


Hafði þessa mynd af þeim bræðrum fyrir framan mig úti á sjó.....

Saturday, October 23, 2010

Myndir úr sumarfríinu í Hollandi



Er stödd úti á rúmsjó norðvestur af landinu og þá er nú gaman að skoða myndirnar sem teknar voru í sumarfríi fjölskyldunnar síðasta sumar. Það væsir ekki um mann hérna um borð en mikið saknar maður nú samt karlanna sinna. Með þessu sendi ég líka bestu kveðjur til Freiburg og Hollands þar sem ég veit að fólkið mitt er duglegt að skoða bloggið okkar hérna á Fróni.....
ég mun reyna að setja inn fleiri myndir á næstunni ef tími gefst og nettenging leyfir.

Monday, August 23, 2010

Einar Tryggvi skokkkar

Myndin af ET var tekin eftir að við hlupum í skemmtiskokkinu í Íslandsbankahlaupinu á laugardaginn var. Við ET ætluðum að hlaupa MEÐ Jakobi (Pétur fór 10 km) en Jakob var ekki lengi að stinga okkur af og kom í mark löngu á undan okkur....(við skulum ekki tala um tíma hér.....:)) .
Þetta er búið að vera afar langt frí frá blogginu en ég ætla að reyna að byrja á þessu aftur þar sem ég veit að mörg ykkar hafið gaman af og ekki síst við...
bestu kveðjur héðan
Posted by Picasa

Wednesday, April 28, 2010

Jakob 2.sæti í skák

Jakob er flottur með silfrið en hann var í öðru sæti á skólamóti í skák í skólanum sínum....

Slæmar erfðir frá móður ;)

Einar Tryggvi er því miður, á unga aldri, orðinn ákaflega sólginn í nammi og ég held að mínir nánustu kannist nú eitthvað við það, ekki satt??

Einar Tryggvi vökvar

Einari Tryggva finnst ákaflega gaman að vökva blómin ....Yukka plantan sýnir þessu mikla þolinmæði þrátt fyrir að henni liggi við drukknun þessa dagana vegna ákafs áhuga litla mannsins......


Óskar 6 ára!!!!

Elsku Óskar, frændi okkar varð 6 ára í gær .....hann er náttúrulega orðinn miklu stærri en á þessari mynd sem var tekin síðastliðið sumar...

Wednesday, April 21, 2010

Fræg mágkona

Það er nóg í að snúast hjá Guðrúnu Nínu þessa dagana....orðin heimsfræg...m.a.s. viðtal sem var sýnt í Kína!! ... við látum nú samt þýska fjölmiðla duga ......

Fréttatími í ARD, Þýskalandi, klikkið á þennan texta!

Monday, April 12, 2010

Reykjavíkur skólaskákmót




Árbæjarskóli byrjaði að kenna skák í haust að frumkvæði Péturs....það hefur gengið vel og nú voru tvær sveitir sem kepptu fyrir hönd skólans á Reykjavíkurskákmóti grunnskólana. Þetta gekk vel hjá þeim A og B sveit lentu í 5. og 6. sætisem er frábær árangur þar sem þau eru að etja við mörg gömulgróin lið úr skólum með ríka skákhefð að maður tali ekki um aldursmuninn sem gat verið á milli keppenda.......sem flottur árangur hjá þeim!

Friday, April 9, 2010

Wednesday, March 24, 2010

Eldgos


Ef þið klikkið HÉR þá sjáið þið beina útsendingu frá eldgosinu sérstaklega flott núna þegar veðrið er svona gott á staðnum

Das ist ein LINK zu webcamera ....schön beim guten Wetter.....

Das sind auch coole videos

Wednesday, March 17, 2010

Labbakútur

myndin er tekin í febrúar ...

Upprennandi prakkari !

Tveir yndislegir


Myndin var tekin fyrir norðan í enda febrúar en þangað ferðuðumst við vegna fótboltamóts sem Jakob tók þátt í. Það er skemmst frá því að segja að Jakob og félagar hans stóðu sig alveg frábærlega á Goðamótinu svokallaða þar sem þeir lentu í 2. sæti!

Monday, March 8, 2010

staðsetning

Meðfylgjandi er hlekkur þar sem hægt er að fylgjast með staðsetningu skipanna í rallinu (ég er á Ljósafelli)
Eftir smá tíma í leiðinda brælu þá skánaði veðrið til muna og allt gengur vel....komin með 69 stöðvar af 129

http://www.hafro.is/hafroskip/hafrosild.php

Wednesday, March 3, 2010

á sjó!

Er í vorralli á Ljósafellinu SA af landinu. Vorum að detta í netsamband og datt í hug að senda ykkur bestu kveðjur í gegnum bloggið.....hér gengur allt vel og veður nokkuð gott....
Klara

Sunday, February 7, 2010

...og farinn að ganga!!!

Hann var ekkert að flýta sér að þessu en um síðustu helgi ákvað Einar Tryggvi að að sleppa sér og þora að taka fyrstu skrefin einn og óháður.....þetta er svo allt að koma hjá honum
bestu kveðjur

Friday, January 29, 2010

Afmælisbörn gærdagsins: Einar Tryggvi 16 mánaða



Þessi elska er orðinn 16 mánaða! Hann heldur heilu ræðurnar þessa dagana og er farinn að segja ótrúlega margt en nennir ekki að labba alveg strax.
Ég læt smá orðabók fylgja kannski einhverjum til skemmtunar: mamma= þýðir mamma en líka er þetta almennt orð yfir "mig vantar" eða "mig langar",detta= þetta, sáu= sjáðu, pabba= pabbi, babob (babúb)= Jakob, hjeksss= kex, banana= banani,addur=aftur,bæ bæ, halló, beiii=vei, daa=bað, ava= afi eða líka sími ...ýmislegt annað hefur dottið upp úr honum við tækifæri eins og "kisa", "me-me" og annað skemmtilegt...ekki má heldur gleyma tveimur mikilvægum orðum sem eru mikið notuð: "kúka" og "takk"
.....ef rafperlufesti Einars Tryggva á myndunum sem fylgja vekur spurningar þá er það nú svo, að samkvæmt hárnákvæmum nýaldarvísindum ku raf hafa hreinsandi eiginleika og þykja því henta vel til varnar eyrnarbólgu...........hm.....eitt er víst að festin sakar heldur ekki.....

Afmælisbörn gærdagsins: Afi Willy

Í gær átti afi Willy 60+ ára afmæli. Þessa skemmtilegu mynd tók Ragnheiður af afmælisbarninu ásamt Lottu sem elskar víst að kúra hjá "pabba" sínum þegar hann leggur sig eftir erfiðan dag.


Lotta


í upphafi árs kom nýr gleðigjafi inn á heimilið í Hátúni. Það er yndisleg tík
af dverg-schnauzer kyni (Pétur kýs að kalla það dvergschnitzel en það er önnur saga).
Hún er afskaplega skemmtileg og eru allir rífandi hrifnir af þessum nýja leikfélaga...

Nýr fjölskyldu meðlimur í Osló

Við fögnum komu Alvars P. Arnkelssonar í heiminn...eins og vera ber þá
hefur þessi glæsilegi prins sína einka bloggsíðu og við fylgjumst spennt með


www.petersen.is/arnkell