Amma Ragga og afi Willy snúa aftur heim í dag eftir Afríkureisu sína. Myndin var tekin kvöldið áður en þau lögðu af stað fyrir rúmum tveimur vikum. Amma Ragga hélt upp á stórafmæli í Afríku en vonandi fáum við að hylla hana hérna heima á næstunni........
Thursday, October 23, 2008
Velkomin heim og til hamingju með afmælið amma Ragga!
Amma Ragga og afi Willy snúa aftur heim í dag eftir Afríkureisu sína. Myndin var tekin kvöldið áður en þau lögðu af stað fyrir rúmum tveimur vikum. Amma Ragga hélt upp á stórafmæli í Afríku en vonandi fáum við að hylla hana hérna heima á næstunni........
Þriggja vikna og brosir BARA til Jakobs :)
Nýji prinsinn okkar varð þriggja vikna á sunnudaginn var. Hann braggast vel enda eyðir hann miklu tíma "á spenanum", sér í lagi yfir daginn.....hingað til hafa næturnar verið mjög þægilegar og allir ná að hvílast vel.
Hann er byrjaður að brosa og fékk Jakob vinninginn þ.e. fyrsta brosið....fyrstu brosin!!!!!! (sá stutti horfir enn með mikilli furðu á okkur fullorðna fólkið......)
bestu kveðjur
Hér hefur verið margt góðra gesta og von á fleirum og við hlökkum til að hitta alla og sýna nýja prinsinn....
Við náum ekki myndum af öllum er hérn eru myndir af frænkunum fríðu á Grandavegi og af Glóey, vinkonu okkar.
Yfir okkur hafa rignt hugheilar kveðjur, gjafir og jafnvel bakkelsi frá nágrönnum, vinum og fjölskyldu, nær og fjær. Við þökkum ykkur öllum kærlega fyrir :)
Bestu kveðjur
Sunday, October 12, 2008
Tveggja vikna
Tuesday, October 7, 2008
Stolt amma !
Amma Ragga er mikil hannyrðakona og eins og sjá má á meðfylgjandi myndum en peysuna og húfuna prjónaði hún af sinn alkunnu snilld. Það vill svo skemmtilega til að liturinn á flíkunum passar einstaklega vel við hinn fallega rauða háralit sem prýðir drenginn......ætli að afi Willy hafi dreymt fyrir þessum háralit og látið Ragnheiði vita???????
Sunday, October 5, 2008
Viku gamall !
Þessi fallegu blóm bárust okkur strax frá afa og ömmu í Freiburg og gleðja okkur enn, viku seinna....Guðbjörg með Lilla
Bræðurnir að kynnast


Tíminn flýgur áfram og hér ríkir eintóm sæla. Ég hefði ekki trúað hversu indælt þetta er þegar allt virðist ganga eðlilega fyrir sig enda er þetta svolítil önnur upplifun en með Jakob okkar nýfæddan.
Lilli litli dafnar vel og er bara indæll og mátulega vær.....Fæðingin ge
kk eins og í sögu.....reyndar gerðist allt mjög skjótt og okkur tókst að endurtaka leikinn eins og með Jakob þ.e. ég var alveg við að eiga þegar við komum upp á deild. Ég hringdi í Siggu systur um kvöldmatarleytið til að óska henni til hamingju með daginn (hún átti afmæli) og sagði henni að ég myndi nú líklegast ekki ná þessu fyrir miðnætti þegar allt fór af stað og Lilli fæddist korter yfir níu um kvöldið. Ég hef víst ekki sett inn nákvæmar tölur sem margir hafa áhuga á en hann vó 3793 grömm (tilaðveranákvæmur) og var 51 cm langur. Með þessari færslu eru nokkrar myndir teknar í vikunni......Bestu kveðjur héðan úr Hraunbænum
Subscribe to:
Posts (Atom)