Friday, April 20, 2012

Háloftaflugvél NASA



Ógleymanlegur laugardagsmorgun hjá Jakobi þegar hann fékk að fara með frænku sinni að skoða og fylgjast með flugtaki háloftaflugvélar NASA sem er stödd hér á landi vegna rannsókna yfir Grænlandsjökli. Guðrún Nína hefur verið að vinna við veðurspár fyrir þá og þannig fengu þau að koma og fylgjast með. Þetta var ótrúlega spennandi fyrir unga menn og víkkaði sjóndeildarhringinn um margar gráður !

Thursday, April 19, 2012

Fjörulallar

Samkvæmt Einari Tryggva er pabbi í heimsókn hjá Kungfu panda þessa dagana. Myndin er tekin í skemmtilegri fjöruferð sem við fórum í um páskana...

Gleðilegt íslenskt sumar!


Maður þarf að þekkja til, til að fatta að þessi kuldarlega mynd er tekin á degi sem markar upphaf sumars hér. Einar Tryggvi er afskaplega ánægður með hjólið sem hann fékk í sumargjöf frá afa og ömmu í Hátúni og hjólar eins og hann hafi ekki gert neitt annað,náttúrulega með mikilli hjálp frá stóra bróður sínum
Með sumarkveðju!

Í Hörpu




Sunday, April 8, 2012

Páskaeggjaleitin

Gleðilega páska!!







Gleðilega páska fjölskylda og vinir nær og fjær....hér er allt í súkkulaði móðu.....súkkulaði egg og hérar frá Þýskalandi, Hollandi og Reykjanesi .........bestu kveðjur