Friday, January 29, 2010

Afmælisbörn gærdagsins: Einar Tryggvi 16 mánaða



Þessi elska er orðinn 16 mánaða! Hann heldur heilu ræðurnar þessa dagana og er farinn að segja ótrúlega margt en nennir ekki að labba alveg strax.
Ég læt smá orðabók fylgja kannski einhverjum til skemmtunar: mamma= þýðir mamma en líka er þetta almennt orð yfir "mig vantar" eða "mig langar",detta= þetta, sáu= sjáðu, pabba= pabbi, babob (babúb)= Jakob, hjeksss= kex, banana= banani,addur=aftur,bæ bæ, halló, beiii=vei, daa=bað, ava= afi eða líka sími ...ýmislegt annað hefur dottið upp úr honum við tækifæri eins og "kisa", "me-me" og annað skemmtilegt...ekki má heldur gleyma tveimur mikilvægum orðum sem eru mikið notuð: "kúka" og "takk"
.....ef rafperlufesti Einars Tryggva á myndunum sem fylgja vekur spurningar þá er það nú svo, að samkvæmt hárnákvæmum nýaldarvísindum ku raf hafa hreinsandi eiginleika og þykja því henta vel til varnar eyrnarbólgu...........hm.....eitt er víst að festin sakar heldur ekki.....

Afmælisbörn gærdagsins: Afi Willy

Í gær átti afi Willy 60+ ára afmæli. Þessa skemmtilegu mynd tók Ragnheiður af afmælisbarninu ásamt Lottu sem elskar víst að kúra hjá "pabba" sínum þegar hann leggur sig eftir erfiðan dag.


Lotta


í upphafi árs kom nýr gleðigjafi inn á heimilið í Hátúni. Það er yndisleg tík
af dverg-schnauzer kyni (Pétur kýs að kalla það dvergschnitzel en það er önnur saga).
Hún er afskaplega skemmtileg og eru allir rífandi hrifnir af þessum nýja leikfélaga...

Nýr fjölskyldu meðlimur í Osló

Við fögnum komu Alvars P. Arnkelssonar í heiminn...eins og vera ber þá
hefur þessi glæsilegi prins sína einka bloggsíðu og við fylgjumst spennt með


www.petersen.is/arnkell