Thursday, November 27, 2008

8vikna.....

Sá litli er er allur að stækka og þroskast og oftast stutt í brosið núorðið. Hann sefur vært og vel á næturnar en vakir mikið á daginn sem verður auðvitað til þess að tími við tölvuna er svolítið takmarkaður og því er ekki bloggað oft maður vildi.......þið sem fylgist grannt með þessum myndum hérna verðið að fyrirgefa það.
Elín Bryndís og Margrét eru að þessu sinni fulltrúar góðra gesta sem hafa heimsótt okkur undanfarið.





+8 vikna

Thursday, November 20, 2008


Við fórum með litla prinsinn 7 vikna í 6 vikna skoðun og allt leit vel út. Hann hefur dafnað mjög vel, orðinn 61 cm og rúm 5400 grömm. Jakob er afskaplega góður við Lilla enda finnst þeim stutta mikið til stóra bróður koma....
kærar kveðjur

Tuesday, November 11, 2008

Hér er önnur tilraun með "hreyfimynd".....til að gera þær ekki of þungar í vöfum þarf maður að minnka gæði og stytta en ég er viss um að sá hluti fjölskyldunnar sem býr víðs vegar í Evrópu og nýtur þess engu að síður .........

6VIKNA_framhald


Sá litli virðist njóta þess að komast í bað.........:)

6VIKNA

Tuesday, November 4, 2008

Fimm vikna !!!



Fallegasta bros í heimi?????

Ýmislegt



















Hildur














Valerie




Hérna læt ég fylgja nokkrar myndir án margra orða.
Við fáum sem betur fer oft yndislegt fólk í heimsókn og því miður gleymist stundum að draga fram myndavélina en hér er mynd af Valerie, samstarfskonu minni og Hildi, frænku Péturs sem fulltrúa góðra gesta........
Bestu kveðjur

Sambandslaus í boði Símans!!!! :)





Kæra fjölskylda og vinir
Afsakið hversu langt hefur liðið í þetta sinn. Við fengum uppfærslu á ADSL kerfinu hjá okkur með þeim afleiðingum að í stað betrumbóta lá það niðri um nokkurt skeið.
Héðan er allt mjög að frétta. Hann varð 5 vikna á sunnudaginn var en því miður erum við enn að brasa við að finna honum passandi nafn. Hlutir, eins og nafnagift,sem okkur fannst vera smáatriði fyrir fæðingu eru orðnir að aðalatriði núna. Það segir kannski meira en mörg orð um það hversu vel allt virðist ganga. Hann er farinn að vera meira vakandi á daginn ....í rauninni tekur hann ekki langa lúra yfir daginn en sefur vel á næturnar og fram eftir morgni. Jakob stendur sig frábærlega og sýnir mikla ábyrgð gagnvart litla bróður. En nóg um kjaftæði í þetta sinn. Á meðfylgjandi myndum má sjá ömmu Elínu með strákinn okkar en hún heimsótti okkur um þarsíðustu helgi þegar sá litli var fjögurra vikna.......
Ástarkveðjur héðan úr Hraunbænum
p.s. Halldóra mín .....tekuru eftir teppinu? Ég heklaði alveg sjálf eða þannig.....;)