Wednesday, April 28, 2010

Jakob 2.sæti í skák

Jakob er flottur með silfrið en hann var í öðru sæti á skólamóti í skák í skólanum sínum....

Slæmar erfðir frá móður ;)

Einar Tryggvi er því miður, á unga aldri, orðinn ákaflega sólginn í nammi og ég held að mínir nánustu kannist nú eitthvað við það, ekki satt??

Einar Tryggvi vökvar

Einari Tryggva finnst ákaflega gaman að vökva blómin ....Yukka plantan sýnir þessu mikla þolinmæði þrátt fyrir að henni liggi við drukknun þessa dagana vegna ákafs áhuga litla mannsins......


Óskar 6 ára!!!!

Elsku Óskar, frændi okkar varð 6 ára í gær .....hann er náttúrulega orðinn miklu stærri en á þessari mynd sem var tekin síðastliðið sumar...

Wednesday, April 21, 2010

Fræg mágkona

Það er nóg í að snúast hjá Guðrúnu Nínu þessa dagana....orðin heimsfræg...m.a.s. viðtal sem var sýnt í Kína!! ... við látum nú samt þýska fjölmiðla duga ......

Fréttatími í ARD, Þýskalandi, klikkið á þennan texta!

Monday, April 12, 2010

Reykjavíkur skólaskákmót




Árbæjarskóli byrjaði að kenna skák í haust að frumkvæði Péturs....það hefur gengið vel og nú voru tvær sveitir sem kepptu fyrir hönd skólans á Reykjavíkurskákmóti grunnskólana. Þetta gekk vel hjá þeim A og B sveit lentu í 5. og 6. sætisem er frábær árangur þar sem þau eru að etja við mörg gömulgróin lið úr skólum með ríka skákhefð að maður tali ekki um aldursmuninn sem gat verið á milli keppenda.......sem flottur árangur hjá þeim!

Friday, April 9, 2010