Monday, October 29, 2012

ET-4 Afmælisveisla

......vegna FJÖLDA áskorana (sem sagt tvær: Sigga systir og Hildur :)) ákvað ég að setja inn myndir sem sýna sjóræningjaskipið (sem var rústir einar nokkrum klukkutímum fyrr) og kökupinnana .....og svo má ekki gleyma gleðipinnanum og afmælisbarninu sjálfu, Einari Tryggva  :)   .best að taka fram að myndasmiðurinn er sjálfur heimilisfaðirinn Pétur Henry Petersen......









ET-4 Afmælisgjafir frá Holland



Afmælisgjafir frá Siggu og Co. í Hollandi eru alltaf fagnaðarefni en það keyrði víst um þverbak í þetta sinn....ég var því miður fjarverandi en mér skildist að gleðin hafi verið mikil.....enda er búningur og samskiptatæki búin að vera í mikilli notkun

Friday, September 28, 2012

Sunday, June 17, 2012

Það er komið sumar


Fyrsta uppskera sumarsins fyrir utan nokkur spínatblöð ...hlakka til að geta boðið mömmu og pabba upp á nýjar kartöflur í haust (þ.e.a.s. ef uppskeran fær frið fyrir leiðindaþjófum hér í matjurtargörðunum)




Einar Tryggvi kampakátur í kerflinum :)




Sautjándi júní í Árbæjarsafni



Jakob Árbæjarskólameistari í skák 2012





Jakob flottur með  bikarana sína en hann varð skólameistari í skák í annað skiptið. Hann er kominn með veglegan farandbikar til geymslu fram á næsta ár. Nú eru þeir feðgar stadddir í Osló og við Einar Tryggvi söknum þeirra mikið.

Friday, May 18, 2012

ET hróðugur með sinn fyrsta fisk!
Pétur og Einar Tryggvi eru í smá sveitaferð og við Jakob erum því miður fjarri góðu gamni en Willy og Ragga voru ekki sein að senda okkur mynd af þeim feðgum  nýkomna úr fystu veiðiferð ársins sem gekk svona vel eins og sjá má.

Friday, April 20, 2012

Háloftaflugvél NASA



Ógleymanlegur laugardagsmorgun hjá Jakobi þegar hann fékk að fara með frænku sinni að skoða og fylgjast með flugtaki háloftaflugvélar NASA sem er stödd hér á landi vegna rannsókna yfir Grænlandsjökli. Guðrún Nína hefur verið að vinna við veðurspár fyrir þá og þannig fengu þau að koma og fylgjast með. Þetta var ótrúlega spennandi fyrir unga menn og víkkaði sjóndeildarhringinn um margar gráður !

Thursday, April 19, 2012

Fjörulallar

Samkvæmt Einari Tryggva er pabbi í heimsókn hjá Kungfu panda þessa dagana. Myndin er tekin í skemmtilegri fjöruferð sem við fórum í um páskana...

Gleðilegt íslenskt sumar!


Maður þarf að þekkja til, til að fatta að þessi kuldarlega mynd er tekin á degi sem markar upphaf sumars hér. Einar Tryggvi er afskaplega ánægður með hjólið sem hann fékk í sumargjöf frá afa og ömmu í Hátúni og hjólar eins og hann hafi ekki gert neitt annað,náttúrulega með mikilli hjálp frá stóra bróður sínum
Með sumarkveðju!

Í Hörpu




Sunday, April 8, 2012

Páskaeggjaleitin

Gleðilega páska!!







Gleðilega páska fjölskylda og vinir nær og fjær....hér er allt í súkkulaði móðu.....súkkulaði egg og hérar frá Þýskalandi, Hollandi og Reykjanesi .........bestu kveðjur