Ógleymanlegur laugardagsmorgun hjá Jakobi þegar hann fékk að fara með frænku sinni að skoða og fylgjast með flugtaki háloftaflugvélar NASA sem er stödd hér á landi vegna rannsókna yfir Grænlandsjökli. Guðrún Nína hefur verið að vinna við veðurspár fyrir þá og þannig fengu þau að koma og fylgjast með. Þetta var ótrúlega spennandi fyrir unga menn og víkkaði sjóndeildarhringinn um margar gráður !
No comments:
Post a Comment