Wednesday, January 28, 2009

Fjögurra mánaða!!!!!






















































Í dag er Einar Tryggvi orðinn fjögurra mánaða!!! Þessi yndislegi strákur braggast rosa vel og er farinn að hafa margt til málanna að leggja, heldur langar og miklar ræður og við hin hlustum andaktug ......
Tengdafaðir minn á einnig afmæli í dag. Við nefnum engar tölur svona á netinu en óskum honum innilega til hamingju með daginn. Þessar myndir sem fylgja eru frá síðastliðnu sumri....

Tuesday, January 27, 2009

Nokkrar myndir







































Héðan er allt gott að frétta. Við héldum upp á fjölskylduafmælið hans Jakob á sunnudaginn var. Þá er akkúratt mánuður liðinn frá hinu raunverulega afmæli og þar með er afmælishaldi fyrir Jakob lokið í bili. Fékk lánaðan svalavagn í gær og ætla að prófa að setja hann út. Þessar myndir voru teknar rétt fyrir helgi af prinsinum sem er alveg að verða fjögurra mánaða! ótrúlegt hvernig tíminn flýgur áfram.....Læt einnig fylgja með mynd af Jakobi á tónleikum fyrir jól. Hann er strax orðinn mjög flinkur á gítarinn og það rosa gaman að heyra hann spila.....
bestu kveðjur

Monday, January 19, 2009

Hámenningarlegur húslestur.....

...án orða..
bestu kveðjur úr Hraunbænum

Thursday, January 15, 2009



Einar Tryggvi er að þroskast hratt þessar vikurnar....til dæmis hefur hann tekið upp á því að ferðast svolítið með því að spyrna við fótunum og hreyfa sig í hringi eins og vísir á klukku. Hann er líka þrælduglegur á maganum, fettir sig og brettir og hefur gaman af nýju sjónarhorni. Hann er farinn að uppgötva og hafa gaman af leikföngunum í kringum sig. Á meðfylgjandi mynd er hann að kynnast Skalla skjaldböku frá Hollandi.....

Mikið að gera hjá Jakobi....




Það fylgja því ýmsir gallar að eiga afmæli á jóladag en því fylgja líka ýmsir kostir. Til dæmis þeir að það er haldið margfalt upp á afmælið og að það teygist á afmælishaldinu út janúarmánuðinn, eins og í ár (stórfjölskylduafmælið eftir..) .Jakob var með bekkjarafmælið sitt í Keiluhöllinni í gær og skemmti sér mjög vel. Ég læt einnig fylgja mynd frá því um helgina þegar Elli gisti ...mikið fjör, mikið gaman ;)

Drauma áheyrandi!

Einar Tryggvi lærði meta söng þegar amma Jútta sat með hann um jólin og sönglaði fyrir hann......Hann er líklegast eina manneskjan í heiminum sem er ánægður með söng minn....Þessi hreyfimynd var tekin fyrir nokkrum vikum og enn kætir það hann alltaf jafn mikið þegar ég hef upp raust mína...ég vona bara að ég sé ekki að eyðileggja absolút heyrn hjá barninu :)

Monday, January 12, 2009

hitt og þetta....






































Hér fá nokkrar myndir frá jólatímanum að fljóta inn á netið......okkur til skemmtunar

Friday, January 2, 2009

Gleðilegt nýtt ár!!!!!






































































Nú fer allt að fara í eðlilegt horf eftir hátíðarnar. Mamma og pabbi drifu sig í heimsókn til landsins til að kynnast nýja fjölskyldumeðliminum og halda með okkurjól og ....það var ákaflega gaman að fá þau í heimsókn og Tryggvi litli naut þess út í ystu æsar. Hann er líka orðin þriggja mánaða og er búin að fá sína fyrstu sprautu og sitt fyrsta kvef........ég dæli hérna nokkrum myndum inn frá síðustu vikum .....