Thursday, January 15, 2009



Einar Tryggvi er að þroskast hratt þessar vikurnar....til dæmis hefur hann tekið upp á því að ferðast svolítið með því að spyrna við fótunum og hreyfa sig í hringi eins og vísir á klukku. Hann er líka þrælduglegur á maganum, fettir sig og brettir og hefur gaman af nýju sjónarhorni. Hann er farinn að uppgötva og hafa gaman af leikföngunum í kringum sig. Á meðfylgjandi mynd er hann að kynnast Skalla skjaldböku frá Hollandi.....

No comments: