Sunday, October 5, 2008

Viku gamall !

Þessi fallegu blóm bárust okkur strax frá afa og ömmu í Freiburg og gleðja okkur enn, viku seinna....














Guðbjörg með Lilla











Bræðurnir að kynnast






























Tíminn flýgur áfram og hér ríkir eintóm sæla. Ég hefði ekki trúað hversu indælt þetta er þegar allt virðist ganga eðlilega fyrir sig enda er þetta svolítil önnur upplifun en með Jakob okkar nýfæddan.
Lilli litli dafnar vel og er bara indæll og mátulega vær.....Fæðingin gekk eins og í sögu.....reyndar gerðist allt mjög skjótt og okkur tókst að endurtaka leikinn eins og með Jakob þ.e. ég var alveg við að eiga þegar við komum upp á deild. Ég hringdi í Siggu systur um kvöldmatarleytið til að óska henni til hamingju með daginn (hún átti afmæli) og sagði henni að ég myndi nú líklegast ekki ná þessu fyrir miðnætti þegar allt fór af stað og Lilli fæddist korter yfir níu um kvöldið. Ég hef víst ekki sett inn nákvæmar tölur sem margir hafa áhuga á en hann vó 3793 grömm (tilaðveranákvæmur) og var 51 cm langur. Með þessari færslu eru nokkrar myndir teknar í vikunni......
Bestu kveðjur héðan úr Hraunbænum

No comments: