Eftir fjölda áskorana.....frá Siggu systur og Snorra þá var loksins drifið í bollumyndatöku, ekki seinna vænna á 38. viku meðgöngu ....
Jakob er orðinn mjög spenntur og hlakkar mikið til þess að takast á við stóra bróður-hlutverkið. Hann hefur einnig reynst ákaflega hjálpsamur t.d. burðast hann með þunga innkaupapoka fyrir mömmu sína með bros á vör. Það er munur að hafa svona hjálparhellu á heimililinu!
No comments:
Post a Comment