Við héldum upp á afmælið hans Einar Tryggva um síðustu helgi og var mikið um dýrðir. Hann fékk marga flotta pakka...leikföng og dót og þökkum við öllum kærlega fyrir hans hönd......
Hér má líka sjá verðandi unglingana, Jakob og Láru, sem voru að bera saman bækur sínar...eða öllu heldur "æpodana" sína.
Afmælisbarnið var líka í sjöunda himni yfir Gogga Mega kökunni sinni, en hann er búin að biðja um Gogga Mega -afmælisköku í langan tíma. Fyrir þau sem ekki þekkja til þá er það persóna í Latabæ, en Latibær er einn af uppáhalds sjónvarpsþáttunum hans Einars Tryggva. Ég hélt nú að
það væri ekkert mál að panta eina svona mynd hjá einhverju bakaríinu, en onei....engin þorði að prenta fyrir mig mynd úr Latabæ af ótta við lögsókn af hálfu fyrirtækisins...Þá voru góð ráð dýr en sem betur fer hafði ég upp á búð í Ármúlanum (Alltíköku-frábær búð og þjónusta) þar sem ég gat reddað öllum nauðsynlegum græjum(sykurmassa, lit o.þ.h.) og sat því sveitt við að mála Gogga á laugardagskvöldið...útkoman er svoldið skrýtin en markmiðinu var náð. Einar Tryggvi var alsæll með þetta.
1 comment:
Ég kalla þig góða að redda þessu svona (ég sökka í afmæliskökugerð) og þetta er mjög flott hjá þér.
Post a Comment