Það getur verið ansi erfitt að smella mynd af Einari Tryggva þessa dagana en ég ákvað að setja þessa inn sérstaklega fyrir afa og ömmu í Þýskalandi. Hann hreyfir sig mikið og leggur upp í marga rannsóknarleiðangra og er að öllu jöfnu glaður. Reyndar er hann á sýklalyfjum núna þar sem hann reyndist vera kominn með eyrnabólgur um síðustu helgi.....jamm, þetta er víst dagmömmupakkinn.....
No comments:
Post a Comment